




MAR SPLIT EYRNALOKKAR SILFUR
Veldu hvernig varan er pökkuð
Frí sending á öllum pöntunum yfir 17.000 kr.
30 daga skiptiréttur á öllum vörum*
Fáðu vöruna afhenta í 1104 skartgripaboxi eða taupoka
MAR SPLIT eyrnalokkarnir sækja innblástur í bráðið hraun og þau einstöku form sem verða til þegar hraun rennur og storknar. Hönnunin einkennist af óreglulegum línum, mjúkum sveigjum og hrárri hraunáferð sem endurspeglar kraftinn og fegurðina í íslenskri náttúru.
MAR SPLIT eru einstakir hringeyrnalokkar sem sameina tvö ólík yfirborð í einni hönnun. Annar hluti hringsins er sléttur og fágaður á meðan hinn hlutinn ber einkennandi hraunáferð MAR línunnar. Þessi skemmtilega andstæða skapar sérstakt jafnvægi á milli hrárrar og klassískrar hönnunar og gefur eyrnalokkunum einstakt yfirbragð.
Eyrnalokkarnir eru úr ryðfríu stáli og eru fallegir einir og sér en einnig tilvaldir til að para með öðrum skartgripum úr MAR línunni. Tímalaus og stílhrein hönnun sem hentar jafnt hversdags sem við fínni tilefni.
Afhendingarmáti
Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðir fyrir viðskiptavini okkar til að fá vörur sínar hratt og örugglega. Allir pakkarnir okkar eru sendir með Dropp sendingarþjónustu og einnig er hægt að sækja í verslun okkar í Ármúla 15.
Hægt að sækja í verslun okkar, Ármúli 15

MAR SPLIT EYRNALOKKAR SILFUR
18mm
Ármúli 15
Ármúli 15
JARÐHÆÐ
108 Reykjavík
Iceland
Veldu






Við erum með verslun
Kíktu til okkar
Komdu í verslunina okkar í Ármúla 15, mátaðu skartið og fáðu persónulega ráðgjöf um stærðir, samsetningar og gjafir.





