Þjónustuskilmálar
Almennir viðskiptaskilmálar 1104 by MAR
Síðast uppfært: 23. október 2026
Skilmálar þessir gilda um viðskipti við 1104 by MAR, bæði í verslun okkar að Ármúla 15 og í netversluninni 1104bymar.is.
1. Upplýsingar um seljanda
1104 by MAR er rekið af MAR Studio ehf.
Rekstraraðili: MAR Studio ehf.
Kennitala: 700920-0380
VSK-númer: 139064
Lögheimili: Álfhólsvegur 127, 201 Kópavogur
Verslun: 1104 by MAR, Ármúli 15, 108 Reykjavík
Netfang: 1104bymar@1104bymar.is
Sími: 644-1104
Netverslun: 1104bymar.is
Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum ofangreint netfang eða símanúmer vegna fyrirspurna, vöruskila, kvartana eða annarra mála sem tengjast kaupum.
2. Gildissvið
Skilmálarnir gilda um sölu á vörum til neytenda í verslun 1104 by MAR og í netversluninni 1104bymar.is. Með því að staðfesta pöntun samþykkir kaupandi skilmálana og eru þeir hluti af kaupsamningi.
Netverslunin 1104bymar.is selur og afhendir vörur innan Íslands. Kaupendur erlendis geta verslað í erlendri netverslun okkar, 1104bymar.com.
Um kaup neytenda hjá 1104 by MAR gilda íslensk lög, þar á meðal lög nr. 16/2016 um neytendasamninga og lög nr. 48/2003 um neytendakaup, eftir því sem við á.
3. Verð og vörulýsingar
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt og önnur opinber gjöld, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Sendingarkostnaður bætist við kaupverð þegar við á og kemur fram áður en pöntun er staðfest.
1104 by MAR áskilur sér rétt til að breyta verði og vöruframboði án fyrirvara og til að leiðrétta augljósar innsláttar-, verð- eða kerfisvillur. Komi slík villa upp eftir að pöntun hefur verið gerð höfum við samband við kaupanda eins fljótt og unnt er, og getur hann þá valið að staðfesta pöntunina á leiðréttum kjörum eða hætta við hana og fá hana endurgreidda að fullu.
Við leggjum áherslu á að myndir, litir og lýsingar endurspegli vörurnar eins nákvæmlega og kostur er. Litir geta þó birst örlítið mismunandi eftir skjástillingum og birtu. Sumir skartgripir okkar innihalda náttúruleg efni, svo sem ferskvatnsperlur, og getur lögun, stærð, litur og áferð þeirra verið breytileg. Slík náttúruleg sérkenni teljast ekki galli á vöru.
4. Pantanir og greiðsla
Þegar kaupandi hefur lokið kaupferlinu fær hann staðfestingu á pöntun senda á það netfang sem gefið var upp. Kaupandi ber ábyrgð á að upplýsingar sem gefnar eru upp við pöntun, svo sem nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang, séu réttar.
Þeir greiðslumöguleikar sem í boði eru hverju sinni koma fram í greiðsluferlinu. Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðsluþjónustu þriðja aðila og geymir 1104 by MAR ekki kortaupplýsingar.
Varan er eign 1104 by MAR þar til hún hefur verið greidd að fullu. Við áskiljum okkur rétt til að hafna eða fella niður pöntun, til dæmis ef greiðsla fæst ekki staðfest eða grunur leikur á misnotkun. Í slíkum tilvikum er pöntunin endurgreidd að fullu.
Reynist vara ekki tiltæk eftir að pöntun hefur verið staðfest verður kaupanda tilkynnt um það eins fljótt og unnt er. Sé ekki hægt að afhenda vöruna verður hún endurgreidd.
5. Gjafabréf og inneignarnótur
Gjafabréf og inneignarnótur útgefnar af 1104 by MAR hafa ekki fyrir fram ákveðinn gildistíma og gilda á meðan 1104 by MAR er í rekstri og tekur við þeim sem greiðslu. Hægt er að nota þau til kaupa í verslun okkar og í netversluninni.
Gjafabréf og inneignarnótur eru ekki greidd út í reiðufé nema lög kveði á um annað. Ef kaupverð er hærra en inneign má greiða mismuninn með öðrum greiðslumáta. Kaupandi ber ábyrgð á að varðveita kóða gjafabréfs.
Útgáfa inneignarnótu takmarkar ekki lögbundinn rétt neytanda til endurgreiðslu þegar slíkur réttur er fyrir hendi.
6. Afhending og sendingar
Pantanir úr netverslun eru sendar með Dropp. Kaupandi getur valið úr þeim afhendingarmöguleikum sem í boði eru hverju sinni, meðal annars:
- að sækja pöntun í verslun okkar að Ármúla 15, sér að kostnaðarlausu,
- heimsendingu með Dropp, eða
- afhendingu á afhendingarstað Dropp.
Verð og nánari upplýsingar um afhendingarmöguleika koma fram í greiðsluferlinu áður en pöntun er staðfest. Frí sending er á pöntunum yfir 17.000 kr.
Kaupandi ber ábyrgð á að afhendingarupplýsingar séu réttar. 1104 by MAR ber ábyrgð á vörunni þar til hún hefur verið afhent kaupanda. Verði fyrirsjáanlegar tafir á afhendingu upplýsum við kaupanda um þær eins fljótt og unnt er. Nánari upplýsingar eru í sendingarskilmálum.
7. Vöruskil og vöruskipti
Reglur um vöruskil eru mismunandi eftir því hvort vara er keypt í verslun okkar eða í netversluninni. Þær takmarka ekki lögbundin réttindi neytenda vegna gallaðrar eða rangrar vöru. Nánari upplýsingar eru í skilareglum.
7.1 Kaup í verslun
Við bjóðum 30 daga skilarétt á vörum sem keyptar eru í verslun okkar að Ármúla 15. Við skil fær kaupandi inneignarnótu fyrir kaupverði vörunnar. Varan þarf að vera ónotuð, óskemmd og í söluhæfu ástandi og kvittun eða önnur staðfesting á kaupum þarf að fylgja.
Útsöluvörum fæst ekki skilað samkvæmt almennum skilarétti, en hægt er að skipta þeim í aðra stærð eða annan lit af sömu vöru, sé hún til á lager og varan ónotuð, óskemmd og í söluhæfu ástandi.
7.2 Kaup í netverslun – 14 daga fráhvarfsréttur
Við kaup í netverslun hefur neytandi 14 daga lögbundinn rétt til að falla frá kaupum án þess að tilgreina ástæðu, samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga. Fresturinn hefst þegar kaupandi, eða þriðji aðili sem hann tilnefnir, tekur við vörunni. Séu margar vörur í sömu pöntun afhentar á mismunandi tímum miðast fresturinn við móttöku síðustu vörunnar.
Til að nýta fráhvarfsréttinn þarf kaupandi að tilkynna okkur ótvírætt um ákvörðun sína áður en fresturinn rennur út, til dæmis með tölvupósti á 1104bymar@1104bymar.is eða með eyðublaðinu í 13. kafla. Vörunni skal skila án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning er send, annaðhvort í verslun okkar að Ármúla 15 eða með því að senda hana til okkar. Kaupandi ber sjálfur beinan kostnað af því að skila vörunni.
Kaupandi ber ábyrgð á rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af annarri meðferð en nauðsynleg er til að kanna eðli, eiginleika og virkni hennar. Við mælum með að vörunni sé skilað í upprunalegum umbúðum.
7.3 Endurgreiðsla vegna fráhvarfs
Þegar kaupandi nýtir 14 daga fráhvarfsréttinn fær hann endurgreiðslu en ekki inneignarnótu, þar á meðal upphaflegan sendingarkostnað að því marki sem lög kveða á um. Hafi kaupandi valið dýrari afhendingarmáta en ódýrasta almenna afhendingarmátann er okkur ekki skylt að endurgreiða mismuninn.
Endurgreitt er án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning um fráhvarf berst, með sama greiðslumiðli og notaður var við kaupin nema um annað sé samið. Heimilt er að halda endurgreiðslu eftir þar til varan hefur borist aftur eða kaupandi hefur sýnt fram á að hún hafi verið send, hvort sem gerist fyrr.
7.4 Netkaup – skil eftir 14 daga
Til viðbótar við lögbundinn fráhvarfsrétt bjóðum við 30 daga almennan skilafrest á netkaupum. Eftir að 14 daga fresturinn er liðinn og fram að lokum 30 daga frestsins getur kaupandi skilað vöru sem uppfyllir skilyrði um skil og fengið inneignarnótu fyrir kaupverði hennar. Kaupandi ber kostnað af því að koma vörunni til okkar.
7.5 Útsöluvörur keyptar í netverslun
Lögbundinn 14 daga fráhvarfsréttur gildir einnig um vörur sem keyptar eru á útsölu eða með afslætti. Eftir að hann er liðinn fæst útsöluvörum ekki skilað gegn inneignarnótu, en hægt er að skipta þeim í aðra stærð eða annan lit af sömu vöru, sé hún til á lager.
8. Undantekningar frá fráhvarfsrétti
Lögbundinn réttur til að falla frá netkaupum gildir ekki í þeim tilvikum sem undanþegin eru samkvæmt lögum nr. 16/2016, til dæmis um:
- vöru sem framleidd er samkvæmt sérstakri forskrift kaupanda eða ber skýrt persónulegt auðkenni hans, svo sem áletraða eða sérsniðna skartgripi, og
- innsiglaða vöru sem ekki hentar til endursendingar af heilbrigðis- eða hreinlætisástæðum eftir að innsigli hefur verið rofið.
Ef undantekning á við um tiltekna vöru er þess getið eftir því sem við á.
9. Gallaðar vörur og kvörtunarfrestur
Telji kaupandi vöru gallaða eða fái hann aðra vöru en hann pantaði skal hann hafa samband við okkur eins fljótt og unnt er á 1104bymar@1104bymar.is. Gott er að láta pöntunarnúmer, lýsingu á vandamálinu og myndir af vörunni fylgja. Við getum óskað eftir að fá vöruna senda til skoðunar.
Reynist vara gölluð og gallinn er ekki af völdum kaupanda á neytandi rétt á úrbótum, nýrri afhendingu, afslætti, riftun eða skaðabótum eftir því sem skilyrði laga um neytendakaup eru uppfyllt. Kvörtunarfrestur vegna galla er tvö ár frá afhendingu vöru og er tveggja ára ábyrgð á öllum skartgripum 1104 by MAR.
Almennur skilaréttur 1104 by MAR takmarkar ekki lögbundinn rétt neytanda til að bera fyrir sig galla.
10. Eðlilegt slit og meðferð skartgripa
Skartgripir geta með tímanum sýnt merki um eðlilegt slit. Ending og útlit ráðast meðal annars af notkun, meðferð, geymslu og snertingu við vatn, ilmvötn, snyrtivörur og hreinsiefni. Eðlilegt slit eða skemmdir sem rekja má til rangrar notkunar, óhapps eða óeðlilegrar meðferðar teljast ekki galli. Leiðbeiningar um umhirðu má finna á síðunni Vöruumhirða.
11. Persónuvernd og vafrakökur
1104 by MAR vinnur með persónuupplýsingar viðskiptavina eftir því sem nauðsynlegt er vegna pantana, greiðslna, afhendingar, þjónustu og samskipta, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Vafrakökur eru notaðar samkvæmt samþykki notanda. Nánari upplýsingar eru í persónuverndarstefnu okkar.
12. Ábyrgðartakmarkanir, ágreiningur og lögsaga
1104 by MAR ber ekki ábyrgð á töfum eða vanefndum sem rekja má til atvika sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á. Skilmálar þessir takmarka ekki þau réttindi sem neytendum eru tryggð samkvæmt ófrávíkjanlegum ákvæðum íslenskra laga.
Sé kaupandi ósáttur við vöru eða þjónustu hvetjum við hann til að hafa fyrst samband við okkur á 1104bymar@1104bymar.is eða í síma 644-1104 svo hægt sé að leita lausnar. Náist ekki samkomulag getur neytandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105 Reykjavík (kvth.is), eða Neytendastofu.
Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
1104 by MAR áskilur sér rétt til að uppfæra skilmálana eftir þörfum. Um hver kaup gilda þeir skilmálar sem í gildi voru þegar viðskiptin áttu sér stað.
13. Eyðublað um fráhvarf frá netkaupum
Ekki er nauðsynlegt að nota þetta eyðublað. Kaupanda er einnig heimilt að senda aðra ótvíræða yfirlýsingu um ákvörðun sína, til dæmis tölvupóst á 1104bymar@1104bymar.is.
Til: 1104 by MAR / MAR Studio ehf., Ármúli 15, 108 Reykjavík, 1104bymar@1104bymar.is
Ég/við tilkynni/tilkynnum hér með að ég/við vil/viljum falla frá samningi um kaup á eftirfarandi vöru/vörum:
Vara/vörur: ______________________________
Pöntunarnúmer: ______________________________
Pöntunardagur: ______________________________
Dagsetning móttöku: ______________________________
Nafn kaupanda: ______________________________
Heimilisfang kaupanda: ______________________________
Netfang: ______________________________
Dagsetning: ______________________________
Undirskrift kaupanda (aðeins ef eyðublaðið er sent á pappír): ______________________________





