Hráasta línan okkar
EIN
EIN er hráasta lína okkar og einkennist af skörpum brúnum, hömruðum áferðum og kraftmiklu yfirbragði. Línan sækir innblástur sinn í brotið berg og hrjúf náttúruform sem mótast af óstöðvandi öflum jarðarinnar.
Óregluleg form og markviss áferð skapa sterkan karakter þar sem hver flötur fangar ljósið á sinn einstaka hátt. Skarpar línur og áberandi áferð gefa skartgripunum kraft og nærveru á meðan handverkið tryggir fágaða heild.
Dagmar Mýrdal, hönnuður og stofnandi
Skoða línunaVinsælustu gripirnir
Gripirnir sem flestir velja úr EIN línunni.
„EIN er djörf, tímalaus og ber með sér styrk sem sést við fyrstu sýn.“
Dagmar Mýrdal
Allir EIN skartgripirnir
26 gripir í EIN línunni. Síaðu eftir tegund eða gulli og silfri.
Síur

























































