Um 1104 by MAR
Skart sem fagnar þér, ekki kyninu.
Dagmar Mýrdal stofnaði 1104 by MAR í desember 2020. Skartið er hannað á Íslandi, sækir í hráa náttúru landsins og er gert fyrir öll.
Nafn með hjartslátt
1104 stendur fyrir 11. apríl, afmælisdag Gunnars Mýrdal, föður Dagmarar.
Gunnar var einn færasti hjartaskurðlæknir landsins og helgaði líf sitt því að bjarga öðrum. Merkið var stofnað honum til heiðurs og ber dagsetninguna hans í nafninu.
Þorðu að vera þú
Framtíðarsýn Dagmarar er að öll sem bera 1104 by MAR finni styrk sinn og þori að vera þau sjálf.
Innblásturinn kemur frá föður hennar, sem trúði því að maður ætti að elta drauma sína óttalaust og af heilum hug.
„Markmið okkar er að fagna íslensku jafnrétti og hrjúfum brúnum íslenskrar náttúru. 1104 by MAR endurskilgreinir skartgripi með því að fara út fyrir hefðbundin kynjahlutverk og setja einstaklinginn ofar kyninu.“
Það sem við stöndum fyrir
Jafnrétti
Hver gripur er hannaður fyrir öll. Þú ræður hvernig þú berð hann.
Íslensk náttúra
Hrjúf áferð og lífræn form, innblásin af hrárri náttúru Íslands.
Einstaklingurinn
Skart sem styrkir sjálfsmyndina í stað þess að segja þér hver þú átt að vera.





