



MAR LONG EYRNALOKKAR GULL
Veldu hvernig varan er pökkuð
Frí sending á öllum pöntunum yfir 17.000 kr.
30 daga skiptiréttur á öllum vörum*
Fáðu vöruna afhenta í 1104 skartgripaboxi eða taupoka
MAR LONG eyrnalokkarnir sækja innblástur í bráðið hraun og þau einstöku form sem verða til þegar hraun rennur og storknar. Hönnunin einkennist af óreglulegum línum, mjúkum sveigjum og hrárri hraunáferð sem endurspeglar kraftinn og fegurðina í íslenskri náttúru.
MAR LONG eru einstakir eyrnalokkar sem skera sig úr með sinni aflöngu og sveigðu lögun. Þeir halda í sömu einkennandi hraunáferð og MAR línan er þekkt fyrir en fá alveg sitt eigið yfirbragð með óreglulegum formum sem skapa fallega hreyfingu og gefa hönnuninni sérstakan karakter. Samspil hrárrar áferðar og mjúkra lína gerir þá bæði áberandi og fágaða.
Eyrnalokkarnir eru úr ryðfríu stáli með hágæða 18K gullhúðun. Þeir eru einstaklega fallegir einir og sér og setja sterkan svip á heildarútlitið, hvort sem þeir eru notaðir hversdags eða við fínni tilefni. Fullkomnir fyrir þau sem vilja einstaka og tímalausa hönnun með tengingu við íslenska náttúru
Afhendingarmáti
Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðir fyrir viðskiptavini okkar til að fá vörur sínar hratt og örugglega. Allir pakkarnir okkar eru sendir með Dropp sendingarþjónustu og einnig er hægt að sækja í verslun okkar í Ármúla 15.
Hægt að sækja í verslun okkar, Ármúli 15

MAR LONG EYRNALOKKAR GULL
Ármúli 15
Ármúli 15
JARÐHÆÐ
108 Reykjavík
Iceland
Veldu





Við erum með verslun
Kíktu til okkar
Komdu í verslunina okkar í Ármúla 15, mátaðu skartið og fáðu persónulega ráðgjöf um stærðir, samsetningar og gjafir.





