


MAR/ERN ARMBAND GULL
Veldu hvernig varan er pökkuð
Frí sending á öllum pöntunum yfir 17.000 kr.
30 daga skiptiréttur á öllum vörum*
Fáðu vöruna afhenta í 1104 skartgripaboxi eða taupoka
MAR / ERN armbandið sækir innblástur í bráðið hraun og þau einstöku form sem verða til þegar hraun rennur og storknar. Hönnunin einkennist af óreglulegum línum, mjúkum sveigjum og hrárri hraunáferð sem endurspeglar kraftinn og fegurðina í íslenskri náttúru.
MAR / ERN er stílhreint og áberandi armband með aflöngu hengiskrauti sem ber einkennandi áferð MAR línunnar. Samspil keðjunnar og hins hráa, áferðarmikla skrauts skapar skemmtilega andstæðu og gefur armbandinu einstakt yfirbragð. Hönnunin er bæði nútímaleg og tímalaus og setur fallegan svip á heildarútlitið.
Armbandið er úr ryðfríu stáli með hágæða 18K gullhúðun. Það er flott eitt og sér en einnig tilvalið að para með öðrum armböndum og skartgripum úr MAR línunni. Fullkomið fyrir þau sem vilja bæta smá karakter við hversdagslegt útlit eða fullkomna klæðnaðinn fyrir fínni tilefni.
Afhendingarmáti
Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðir fyrir viðskiptavini okkar til að fá vörur sínar hratt og örugglega. Allir pakkarnir okkar eru sendir með Dropp sendingarþjónustu og einnig er hægt að sækja í verslun okkar í Ármúla 15.
Hægt að sækja í verslun okkar, Ármúli 15

MAR/ERN ARMBAND GULL
17 cm
Ármúli 15
Ármúli 15
JARÐHÆÐ
108 Reykjavík
Iceland
Veldu




Við erum með verslun
Kíktu til okkar
Komdu í verslunina okkar í Ármúla 15, mátaðu skartið og fáðu persónulega ráðgjöf um stærðir, samsetningar og gjafir.





