Fyrsta línan frá 1104
MAR
MAR línan er fyrsta línan sem ég hannaði. Í upphafi samanstóð hún einungis af einum eyrnalokk og einum hring, en síðan þá hefur línan stækkað verulega og er í dag ein stærsta og vinsælasta línan okkar.
Innblásturinn að línunni kemur frá íslensku hrauni og þeirri einstöku áferð sem myndast þegar það bráðnar og storknar. Fyrstu útgáfur línunnar voru sléttari og sóttu innblástur í bráðið hraun, en síðar þróaðist hönnunin áfram yfir í hráari útgáfur þar sem hraunið virðist mótast út úr skartgripunum sjálfum og skapar þannig lifandi og ólíka áferð.
Dagmar Mýrdal, hönnuður og stofnandi
Skoða línunaVinsælustu gripirnir
Gripirnir sem flestir velja úr MAR línunni.
„MAR línan sameinar hráa fegurð og fágað yfirbragð. Hún er bæði elegant og kraftmikil á sama tíma.“
Dagmar Mýrdal
Allir MAR skartgripirnir
43 gripir í MAR línunni. Síaðu eftir tegund eða gulli og silfri.
Síur

























































































