Skilmálar þjónustu
Seljandi er 1104 by MAR.
kt. 700920-0380
Vsk.nr. 139064.
Kaupandi er sá aðili sem skráður er kaupandi á reikningi.
Skilmálar þessir gilda um viðskipti seljanda og kaupanda á vefversluninni 1104bymar.com
Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar.
Kaupandi er sá aðili sem skráður er kaupandi á reikningi.
Skilmálar þessir gilda um viðskipti seljanda og kaupanda á vefversluninni https://1104bymar.com.
Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar.
Pöntun vöru
Seljandi sendir kaupanda staðfestingu á pöntun á það netfang sem kaupandi hefur gefið upp vegna viðskiptanna.
Þegar kaupandi hefur staðfest pöntun í vefverslun á vefsvæðinu 1104bymar.com telst hún skuldbindandi fyrir hann.
Kaupandi er hvattur til þess að kanna sérstaklega hvort staðfesting á pöntun hafi borist frá seljanda og hvort hún sé í samræmi við óskir hans.
Fyrirvari um réttar upplýsingar
Þær upplýsingar sem eru birtar í vefversluninni eru með fyrirvara um innsláttarvillur, birgðastöðu og verðbreytingar, svo sem vegna gengisbreytinga.
Seljandi áskilur sér rétt til að falla frá viðskiptum í heild eða að hluta ef rangt verð er skráð á vöru, hún er uppseld eða innkaupsverð hennar hefur hækkað.
Verð
Kostnaður vegna pöntunar á vöru er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun.
Heildarkostnaður inniheldur allan kostnað við pöntun utan sendingarkostnaðar.
Öll verð í netversluninni eru með VSK.
Greiðsla
Viðskipti í vefversluninni eru greidd með greiðslukortum (Mastercard og Visa). Greiðslan fer fram í gegnum örugga afgreiðslu Valitor ehf. Ef greiðsla berst ekki áskilur seljandi sér rétt til að falla frá viðskiptunum.
Varan er eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt. Reikningsviðskipti afnema ekki eignarrétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist seljanda.
Galli
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Við notum þær persónuupplýsingar sem þú veitir til að afgreiða pöntunina og í þeim tilgangi sem nánar er gerð grein fyrir í Persónuverndarstefnu okkar.
Höfundarréttur
Allt efni á vefsvæði 1104bymar.com er eign 1104 by MAR eða eign birgja sem auglýsa og selja vörur sinar á vefsvæðinu. 1104 by MAR er meðal annars skráð vörumerki og má ekki nota í tengslum við neina vöru eða þjónustu án leyfis.
Lögsaga og varnarþing
Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur..
Upplýsingar um seljanda
Nafn: 1104 by MAR
Heimilisfang: Faxafen 10, 108 Reykjavik
Netfang: 1104bymar@1104bymar.com
Kennitala: 700920-0380
Vsk. númer. 139064
Félagið er skráð hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.