





MAR XL HÁLSMEN GULL
Veldu hvernig varan er pökkuð
Frí sending á öllum pöntunum yfir 17.000 kr.
30 daga skiptiréttur á öllum vörum*
Fáðu vöruna afhenta í 1104 skartgripaboxi eða taupoka
MAR XL hálsmenið sækir innblástur í bráðið hraun og þau einstöku form sem verða til þegar hraun rennur og storknar. Hönnunin einkennist af óreglulegum línum, mjúkum sveigjum og hrárri hraunáferð sem endurspeglar kraftinn og fegurðina í íslenskri náttúru.
MAR XL er áberandi og einstakt hálsmen þar sem áferðarmikil hengiskraut úr MAR línunni raðast saman allan hringinn. Hvert skraut hefur sitt eigið form og saman skapa þau skemmtilega heild sem sameinar hrátt yfirbragð og fágaða hönnun. Hálsmenið hefur sterkan karakter en heldur jafnframt tímalausum glæsileika sem gerir það að einstaklega fjölhæfum skartgrip.
Hálsmenið er úr ryðfríu stáli með hágæða 18K gullhúðun. Það er sérstaklega fallegt eitt og sér og setur sterkan svip á heildarútlitið, hvort sem það er notað hversdags eða við fínni tilefni. Fullkomið fyrir þau sem vilja áberandi skartgrip með einstaka tengingu við íslenska náttúru.
Afhendingarmáti
Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðir fyrir viðskiptavini okkar til að fá vörur sínar hratt og örugglega. Allir pakkarnir okkar eru sendir með Dropp sendingarþjónustu og einnig er hægt að sækja í verslun okkar í Ármúla 15.
Hægt að sækja í verslun okkar, Ármúli 15

MAR XL HÁLSMEN GULL
36 cm
Ármúli 15
Ármúli 15
JARÐHÆÐ
108 Reykjavík
Iceland
Veldu







Við erum með verslun
Kíktu til okkar
Komdu í verslunina okkar í Ármúla 15, mátaðu skartið og fáðu persónulega ráðgjöf um stærðir, samsetningar og gjafir.





