


MAR X3 HÁLSMEN SILFUR
Veldu hvernig varan er pökkuð
Frí sending á öllum pöntunum yfir 17.000 kr.
30 daga skiptiréttur á öllum vörum*
Fáðu vöruna afhenta í 1104 skartgripaboxi eða taupoka
MAR X3 hálsmenið sækir innblástur í bráðið hraun og þau einstöku form sem verða til þegar hraun rennur og storknar. Hönnunin einkennist af óreglulegum línum, mjúkum sveigjum og hrárri hraunáferð sem endurspeglar kraftinn og fegurðina í íslenskri náttúru.
MAR X3 er fíngert og skemmtilegt hálsmen með þremur hengiskrautum sem hvert um sig ber einkennandi áferð MAR línunnar. Samspil einföldu keðjunnar og áferðarmiklu hengiskrautanna skapar fallegt jafnvægi á milli hrárrar og fágaðrar hönnunar.
Hálsmenið er úr ryðfríu stáli og er einstaklega fallegt eitt og sér. Það hentar jafnt hversdags sem við fínni tilefni og er fullkomið fyrir þau sem vilja einfaldan en sérstakan skartgrip sem setur svip á heildarútlitið.
Afhendingarmáti
Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðir fyrir viðskiptavini okkar til að fá vörur sínar hratt og örugglega. Allir pakkarnir okkar eru sendir með Dropp sendingarþjónustu og einnig er hægt að sækja í verslun okkar í Ármúla 15.
Hægt að sækja í verslun okkar, Ármúli 15

MAR X3 HÁLSMEN SILFUR
Ármúli 15
Ármúli 15
JARÐHÆÐ
108 Reykjavík
Iceland
Veldu




Við erum með verslun
Kíktu til okkar
Komdu í verslunina okkar í Ármúla 15, mátaðu skartið og fáðu persónulega ráðgjöf um stærðir, samsetningar og gjafir.





