




MAR TAIL HRINGUR GULL
Veldu hvernig varan er pökkuð
Frí sending á öllum pöntunum yfir 17.000 kr.
30 daga skiptiréttur á öllum vörum*
Fáðu vöruna afhenta í 1104 skartgripaboxi eða taupoka
MAR TAIL hringurinn sækir innblástur í bráðið hraun og þau einstöku form sem verða til þegar hraun rennur og storknar. Hönnunin einkennist af óreglulegum línum, mjúkum sveigjum og hrárri hraunáferð sem endurspeglar kraftinn og fegurðina í íslenskri náttúru.
MAR TAIL er einstakur hringur úr MAR línunni sem sker sig úr með opnu og óreglulegu formi. Endar hringsins sveigjast upp á ólíkan hátt og minna á bráðið hraun sem er á stöðugri hreyfingu. Samspil áberandi forma og mjúkra lína skapar kraftmikla en jafnframt fágaða hönnun sem gefur hringnum sérstakan karakter.
Hringurinn er úr ryðfríu stáli með hágæða 18K gullhúðun. Hann er áberandi og fallegur einn og sér en einnig skemmtilegur að para með öðrum hringum og skartgripum úr MAR línunni. Tímalaus hönnun fyrir þau sem vilja einstakan skartgrip með sterka tengingu við íslenska náttúru.
Afhendingarmáti
Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðir fyrir viðskiptavini okkar til að fá vörur sínar hratt og örugglega. Allir pakkarnir okkar eru sendir með Dropp sendingarþjónustu og einnig er hægt að sækja í verslun okkar í Ármúla 15.
Hægt að sækja í verslun okkar, Ármúli 15

MAR TAIL HRINGUR GULL
6
Ármúli 15
Ármúli 15
JARÐHÆÐ
108 Reykjavík
Iceland
Veldu






Við erum með verslun
Kíktu til okkar
Komdu í verslunina okkar í Ármúla 15, mátaðu skartið og fáðu persónulega ráðgjöf um stærðir, samsetningar og gjafir.





