





MAR XXL HRINGUR SILFUR
Veldu hvernig varan er pökkuð
Frí sending á öllum pöntunum yfir 17.000 kr.
30 daga skiptiréttur á öllum vörum*
Fáðu vöruna afhenta í 1104 skartgripaboxi eða taupoka
MAR XXL hringurinn sækir innblástur í bráðið hraun og þau einstöku form sem verða til þegar hraun rennur og storknar. Hönnunin einkennist af áberandi óreglulegum formum, djúpri áferð og mjúkum sveigjum sem endurspegla kraftinn og fegurðina í íslenskri náttúru.
MAR XXL er breiðasta og kraftmesta útgáfan af MAR hringnum. Hann hefur enn grófari strúktúr og meira áberandi form en MAR og MAR XL, en heldur sömu einkennandi hraunáferð og tengir alla línuna saman. Hringurinn hefur notið gríðarlegra vinsælda hjá okkur enda sameinar hann á einstakan hátt hráa og kraftmikla hönnun við klassískt og tímalaust yfirbragð.
MAR XXL hringurinn er úr ryðfríu stáli. Hann er fallegur einn og sér sem áberandi skartgripur en einnig skemmtilegur að para með fíngerðari hringum eða öðrum skartgripum úr MAR línunni.
Afhendingarmáti
Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðir fyrir viðskiptavini okkar til að fá vörur sínar hratt og örugglega. Allir pakkarnir okkar eru sendir með Dropp sendingarþjónustu og einnig er hægt að sækja í verslun okkar í Ármúla 15.
Hægt að sækja í verslun okkar, Ármúli 15

MAR XXL HRINGUR SILFUR
6
Ármúli 15
Ármúli 15
JARÐHÆÐ
108 Reykjavík
Iceland
Veldu







Við erum með verslun
Kíktu til okkar
Komdu í verslunina okkar í Ármúla 15, mátaðu skartið og fáðu persónulega ráðgjöf um stærðir, samsetningar og gjafir.





