Þjónusta
Spurt og svarað
Svör við algengustu spurningunum um pantanir, sendingar og skartið sjálft.
Pantanir og sendingar
Sendið þið erlendis?
Já, við sendum erlendis, en þá bendum við á erlendu síðuna okkar, 1104bymar.com.
Hvað kostar heimsending?
Í greiðsluferlinu sérðu hvaða sendingarmöguleikar eru í boði og hvað hver þeirra kostar, áður en þú gengur frá kaupunum. Allar sendingarleiðir eru útskýrðar á síðunni Sendingar.
Get ég sótt pöntunina í verslunina?
Já, þú getur sótt pöntunina til okkar í Ármúla 15 þér að kostnaðarlausu á opnunartíma.
Skartið
Úr hverju eru skartgripirnir?
Skartgripirnir okkar eru úr ryðfríu stáli og gullskartgripirnir eru með 18K gullhúðun.
Er skartið vatnshelt?
Við notum einstaklega þykka og vandaða gullhúðun á skartgripina okkar úr ryðfríu stáli. Til að varðveita fallegt útlit þeirra sem allra lengst mælum við þó með að taka þá af fyrir sund, sturtu og líkamsrækt. Sjá nánar um vöruumhirðu.
Er einhver ábyrgð á skartgripunum hjá ykkur?
Já, það er 2 ára ábyrgð á öllum skartgripunum okkar.
Hvernig finn ég rétta hringastærð?
Hringirnir okkar eru í US stærðum. Í hringastærðartöflunni sérðu hvernig þær samsvara EU-stærðum, ummáli og þvermáli.
Gjafir
Þarftu aðstoð við að velja gjöf?
Hafðu samband og fáðu persónulega ráðgjöf um stærðir, hvernig má para saman skartgripi eða velja hina fullkomnu gjöf.
Eruð þið með gjafabréf?
Já, gjafabréfin okkar fást í nokkrum upphæðum og hægt er að senda þau beint á viðtakanda í tölvupósti.
Fannstu ekki svarið?
Hafðu samband eða kíktu til okkar í Ármúla 15. Við aðstoðum þig með ánægju.





